Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður árið 2013 og er félagasamtök um golfvöllinn í Hraunborgum í Grímsnes og Grafningshrepp.
Golfvöllurinn er skemmtilegur 9 holu, par 3 völlur sem hentar öllum að spila, en á vellinum hafa margir stigið sín fyrstu skref í golfíþróttinni.
Markmið Golfklúbbs Hraunborga er að stuðla að golfíþróttinni og gefa öllum aldurshópum tækifæri á því að spila þessa frábæru íþrótt fyrir sanngjarnt verð og í skemmtilegum félagsskap.
Golfvöllurinn er opin fyrir öllum, þ.e.a.s. bæði fyrir félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum, en verðskrá golfklúbbsins má finna hér gjaldskrá.
Rástíma þarf ekki að panta hjá okkur heldur mætir golfarinn eingöngu á völlinn til að spila.
Golfsumarið 2023 munum við halda nokkur mót fyrir félagsmenn, t.d. Texas Scramble, Meistaramót Hraunborga o.s.frv., sjá nánar hér undir mót.
Golfskálinn okkar er þjónustumiðstöðin í Hraunborgun (Lava Village) en þar er boðið upp á mat, drykki, útisvæði, leiktæki, mini golf, sundlaug o.s.frv.