Golfklúbbur Hraunborga
  • Forsíða
  • Rástímar
  • Gjaldskrá
  • Mót
  • Klúbburinn
  • Facebook
  • Þjónustumiðstöð
  • English

Golfmót

Golfsumarið 2022 höldum við nokkur mót fyrir félagsmenn, en nánari upplýsingar og skráningu má sjá hér fyrir neðan:

Meistaramót Golfklúbbs Hraunborga verður haldið laugardaginn 7 ágúst 2021 kl. 11.00 og spilaðir verða tveir hringir eða 18 holur til forgjafar, en 18 er hámarksforgjöf í karla- og kvennaflokki.

Skráning fer fram hér fyrir neðan og er mótsgjaldið 2.500 kr., sem millifæra á inn á reikning: 111-26-70091, kt. 700913-0230, en frestur til skráningar er til kl. 12.00 föstudaginn 6 ágúst.

Ath. Mótið er eingöngu fyrir félagsmenn, en þeir sem eru ekki skráðir og vilja taka þátt geta valið um að greiða til viðbótar félagsgjaldið sem er 3.000 kr. án spilaréttar eða greitt árgjaldið með spilarétti sem er 16.500 kr. fyrir einstakling eða 25.000 fyrir pör/hjón.

Verðlaunin verða þau stærstu frá upphafi eða ferðavinningar (gjafabréf 50, 30 og 10 þús. kr.) fyrir efstu 3 sætin í karla- og kvennaflokki, medalíur og nándarverðlaun á 4 holu í báðum flokkum, ásamt glæsilegum farandbikurum.

​Verðlaunaafhendingin verður í þjónustumiðstöðinni að móti loknu. 

    Skráning í meistaramót Hraunborga:

Senda
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture

Golfklúbbur Hraunborga / Hraunborgir / Grímsnes og Grafningshreppur / Kennitala: 700913-0230 /  www.gkh.is / gkh@gkh.is
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
  • Rástímar
  • Gjaldskrá
  • Mót
  • Klúbburinn
  • Facebook
  • Þjónustumiðstöð
  • English